Aðalvalmynd

Auglýsing

Bloggvinir

Tenglar

Teljari

Lokablogg??Anna Guðný

Ég er búin að vera að reyna að loka bloggsíðunni minni þar sem ég hef aldrei neitt að skrifa um lengur...er orðin allt of hugmyndasnauð og löt. Reyndar er margt að gerast...kosningar framundan og eurovision og ýmislegt sem hægt er að skrifa um. En vandamálið er að ég veit ekkert hvernig ég á að loka síðunni...spurning hvort það sé leið heimsins til þess að fá mig til að skrifa áfram eða sýna mér hvað ég kann lítið á tölvur...

Labbi labbiAnna Guðný

Vaknaði í morgun með hausverk og hálsbólgu. Eftir að hafa vorkennt mér í smá tíma ákvað ég að hressa mig við og fara á fætur. Taldi mig ekki vera nógu hressa til að taka vel á því í ræktinni. Fannst líka algjör sóun á góðu veðri að fara í ræktina og ákvað því að ganga í kringum Vífilsstaðavatn í staðinn. Sé ekki eftir því. Gekk í algjörri stillu í snjónum með sólina í andlitinu. Fannst það algjört æði. Mæli með því fyrir hvern sem getur að nýta góða veðrið núna og fara út í göngutúr!

Lélegt...Anna Guðný

Hef mikinn áhuga á að mótmæla lélegum fréttum og fréttaflutningi liðinna daga. Til að styðja mál mitt bendi ég á hádegisfréttatíma Stöðvar 2 á mánudaginn og þessa frétt á vísi.is. Hádegisfréttatíminn var bæði mikil tímasóun áhorfenda og peningaeyðsla sjónvarpstöðvarinnar en fréttin var um nákvæmlega ekki neitt. Greyið fréttafólkið stóð og beið eftir því að einhver hafði eitthvað að segja...en það gerðist ekki fyrr en eftir laaaanga bið sem var frekar pínleg að mínu mati. Fréttin á vísi er hins vegar svo illa skrifuð að það mætti halda að sá sem skrifaði hana hafi verið að flýta sér allt of mikið til að komi henni út. Hvað varð um að vanda sig við fréttaflutning? Hvort er betra að vera fyrstur með fréttirnar eða vera stoltur af skrifunum?

Smá bloggAnna Guðný

Það hafa margir spurt hvort ég sé hætt að blogga úr því ég kom með þá hugmynd í síðustu bloggfærslu. En ég get víst ekki neitað aðdáendum mínum um það að skrifa þetta awesome blogg. Vonast bara til að síðan verði algjörlega legendary!

Það er margt að gerast á nýju ári og í raun eru ákveðin tímamót í lífi mínu núna. Ég hef undanfarin 25 ár búið í sama húsinu og ég hef aldrei flutt um ævina. En núna er ég farin að flytja dótið mitt í góða hverfið í Kópavoginum þar sem kókómjólk er alltaf til í ísskápnum og suðusúkkulaði í nammiskápnum. Gæti það verið nokkuð betra? Er því að verða hrikalega flott húsfreyja á Vatnsenda... Wink

Íslendingar ætla að setja heimsmet í mótmælum þessa dagana og skil ég það ósköp vel. Skil eiginlega ekki af hverju ég hef aldrei mætt á laugardegi til þess að mótmæla. Vil samt ekki vera ein af hópnum sem hefur staðið fyrir mótmælum frá því í gær. Skil ekki tilganginn í því að skíta allt út því það eru líklegast við skattgreiðendur sem borgum þrifin. Og allar aukavaktirnar hjá lögreglumönnunum. Skil samt ekki alveg löggurnar heldur...annað hvort eru þeir alltaf til í smá slagsmál eða bara orðnir allt of þreyttir og finnst þess vegna erfitt að hafa hemil á sér.
Maður spyr sig.

Hélt ég þyrfti aldrei að hræðast það að missa vinnuna því í gegnum tíðina hefur verið þvílíkur skortur á hjúkrunarfræðingum að hver og einn gat valið þá vinnu sem þótti henta best. Auðvitað vantar enn hjúkrunarfræðinga en það skiptir engu máli...það eina sem skiptir máli núna er ráðningarbann og yfirvinnubann. Þeir sem útskrifast í vor eru því allir á höttunum á eftir vinnu sem er hvergi að fá...eitthvað sem ég hélt að ætti frekar við um viðskiptafræðinga. En það er víst kreppa og þá getur ýmislegt gerst. Vona að þetta hafi þær afleiðingar að við sem starfsmenn og einstaklingar verðum betur metin að verðleikum en áður. Áður var nóg að hafa prófið en núna hlýtur að skipta máli hvers konar starfsmaður maður er. Og það er auðvitað jákvætt.

Hugsa til þess daglega og stundum oft á dag hversu þakklát ég er fyrir það að hafa ekki keypt mér íbúð fyrir um 1 ári síðan eins og ég ætlaði mér. Er líka mjög þakklát fyrir það að hafa ekki sett sparipeningana mína í hlutabréf eins og margir vina minna ráðlögðu mér. Stundum er bara gott að vera svolítið skynsamur og kannski smá gunga líka.

Vil svo að endingu benda ykkur á nýjar myndir á myndasíðunni minni...

Nýtt árAnna Guðný

Jæja, þá er komið nýtt ár og því fylgir auðvitað nýtt blogg. Vil byrja á að óska ykkur gleðilegs nýs árs og ég vona að þið hafið haft það gott um jólin. Það hef ég svo sannarlega gert og efast ekki um að ég sé búin að éta á mig allt sem fauk af í átakinu góða. En það má byrja að berjast á móti því núna fljótlega þegar lífið kemst í fastar skorður aftur og stórsteikur og heitt súkkulaði með rjóma hætta að vera á matseðlinum á hverjum degi. Jólin eru og verða alltaf yndisleg held ég og mér finnst synd og skömm hversu fljótt þau líða.

En ég hef aðeins verið að velta fyrir mér þessari bloggsíðu. Nenni varla að halda henni úti og velti fyrir mér hvort það sé áhugi hjá lesendum að ég haldi skrifum áfram eða hvort mér sé óhætt að hætta þessu ruglumbulli. Held bara svei mér þá að lífið mitt sé ekki það spennandi að ég hafi svo margt að segja. Svo nenni ég varla að vera eins og einn af moggabloggurunum...sem tauta og röfla yfir öllu... en þá er ekki svo margt eftir að fjalla um. En hvað segið þið um þetta?

Bloggiddí bloggAnna Guðný

Ég hef verið hrikalega léleg í að blogga undanfarið. Veit hreinlega ekki af hverju. Hef þannig lagað séð ekkert haft svo mikið að gera. Er samt búin að vera svolítið upptekin við að undirbúa jólin sem koma bara eftir nokkra daga...svei mér þá! Jólaundirbúningurinn hefur falið í sér laufabrauðsgerð, smákökubakstur, jólagjafaleiðangra, kaup á einu jólatré, skreytingum, labbi niður Laugaveginn og ýmsu öðru huggulegu. Núna á ég bara eftir að redda aðalgjöfinni og þá geta jólin komið. Þarf reyndar að vinna svolítið mikið fyrst...en hverjum er ekki sama um það!

Ég held að það versta sem foreldrar geta gert börnum sínum og barnabörnum er að skilja. Því þegar það kemur að því að ákveða hvar á að vera á jólunum getur það verið svolítill hausverkur. Sérstaklega ef makinn á líka fráskylda foreldra. Það þýðir fjögur heimili sem þarf að heimsækja á aðeins nokkrum helgidögum. Barnabörnin fá hins vegar allt of margir pakka frá allt of mörgum öfum og ömmum. Veit ekki hvort börnunum finnist þetta mikið vandamál en held þau verði oftar en ekki ansi dekruð og ringluð í öllu pakkastússinu. En auðvitað er þetta ekkert vandamál...í stað þess að kvarta ætti ég frekar að þakka fyrir allt góða fólkið í kringum mig! Því það er ekkert annað en frábært Smile

Heilsuátaki lokiðAnna Guðný

Heilsuátakinu á barnaskurðdeildinni lauk á mánudaginn og þá var ég aftur vigtuð og fituprósentan mæld. Ég hafði þá lést um 2 kg, fituprósentan lækkað um 2,4% og kviðarummálið minnkað um 9 cm. Já, heila 9 cm! Alveg geggjað. Síðan reiknaði þjálfarinn út hver hefði unnið og gaf hún stig fyrir hvert kíló, hverja fituprósentu og hvern sentimetra sem einstaklingur hafði misst eða bætt á sig. Því markmiðin voru náttúrulega ekki þau sömu hjá öllum. Sumir vildu bæta á sig og þyngja sig á meðan aðrir vildu létta sig og grennast. En niðurstaðan kom í dag og mér til mikillar undrunar vann ég keppnina. Það þýðir að ég fæ alla peningana sem við lögðum í pott í byrjun átaksins. En það eru um 30.000 kr! Finnst ég varla geta tekið við þessu, hef hreinilega ekki samvisku í það. En er að hugsa um að finna eitthvað gott málefni og styrkja það. Get einhvern veginn ekki eytt þessu í mig.

En já, ég er aldeilis hissa...var alveg búin að ákveða hver myndi vinna keppnina...hún Stína sæta...því hún er búin að vera svaka dugleg.En ég óska okkur öllum til hamingju með árangurinn. Erum búnar að vera svaka duglegar...nema kannski sú sem þyngdist um 2 kíló!! He he Wink

Svolítið spennt...Anna Guðný

Ég er mjög spennt fyrir jólunum...og hef verið það í svolítinn tíma. Hef þess vegna þurft að neita mér um það að hlakka til jólanna og orðið að segja sjálfri mér að það sé ekki sniðugt að byrja að baka strax eða þrífa eða kaupa gjafir því allt þetta finnst mér tilheyra desember mánuði. En mér finnst einhvern veginn eins og allur undirbúningurinn megi fara af stað þegar þessari næturvaktahelgi lýkur. Því desember hefst víst á mánudag og fyrsti í aðventu er í dag svo þetta er allt saman að koma. Held að ég sé ekkert spenntari en vanalega, er bara svolítið mikið jólabarn. Skil ekki fólk sem hlakkar ekki til jólanna eða finnst jólin leiðinleg. Það er algjörlega ofar mínum skilningi.

MyndirAnna Guðný

Setti inn nýjar myndir á myndasíðuna. Þær eru þó ekki alveg nýjar heldur frá því í sumar og eru kannski svolítið einhæfar...ég, Gummi, landslagið...Gummi, ég og landslagið o.s.frv. En við erum svo falleg að það er allt í lagi Wink

Nýtt uppáhaldAnna Guðný

Er stundum svolítið aftarlega á merinni og uppgötva suma hluti svolítið seint. Oftast vegna þess að ég er ósköp vanaföst og íhaldssöm. Er hins vegar öll að koma til og er farin að breyta út af gömlum vana og farin að þora að smakka ýmislegt sem hefur aldrei áður komið inn fyrir mínar varir. Er til dæmis farin að borða meira af fisk og hef verið með plokkfisk í matinn og líkað ágætlega. Lofa ykkur samt að ég mun aldrei borða hnetur. Þær eru hreinn viðbjóður.

En nýjasta uppfinningin í matargeiranum eru sætar kartöflur. Ótrúlega eru þær góðar, gæti borðað þær á hverjum degi held ég barasta. Eða svona næstum. Mæli með að þið fáið ykkur sætar kartöflur í dag, kemur öllu í lag!

Síða 1 af 21

Prófíll

Gagnasafn

Innskráningar kubbur