annagudny.bloggar.is
Nýtt uppáhaldAnna Guðný
Er stundum svolítið aftarlega á merinni og uppgötva suma hluti svolítið seint. Oftast vegna þess að ég er ósköp vanaföst og íhaldssöm. Er hins vegar öll að koma til og er farin að breyta út af gömlum vana og farin að þora að smakka ýmislegt sem hefur aldrei áður komið inn fyrir mínar varir. Er til dæmis farin að borða meira af fisk og hef verið með plokkfisk í matinn og líkað ágætlega. Lofa ykkur samt að ég mun aldrei borða hnetur. Þær eru hreinn viðbjóður.
En nýjasta uppfinningin í matargeiranum eru sætar kartöflur. Ótrúlega eru þær góðar, gæti borðað þær á hverjum degi held ég barasta. Eða svona næstum. Mæli með að þið fáið ykkur sætar kartöflur í dag, kemur öllu í lag!
Athugasemdir
1
Þuríður skrifar:
Sammála með hneturnar... alveg ótrúlega vondar! Segi bara að ég hafi ofnæmi, þ.e. andlegt ofnæmi fyrir þeim:Þ
21. nóvember 2008 klukkan 19:44
2
Rakel skrifar:
Tek undir þetta með hneturnar, skil bara ekki hvernig fólk getur borðað þetta drasl! Já, og velkomin á FaceBook.
22. nóvember 2008 klukkan 01:17
