annagudny.bloggar.is
Svolítiđ spennt...Anna Guđný
Ég er mjög spennt fyrir jólunum...og hef verið það í svolítinn tíma. Hef þess vegna þurft að neita mér um það að hlakka til jólanna og orðið að segja sjálfri mér að það sé ekki sniðugt að byrja að baka strax eða þrífa eða kaupa gjafir því allt þetta finnst mér tilheyra desember mánuði. En mér finnst einhvern veginn eins og allur undirbúningurinn megi fara af stað þegar þessari næturvaktahelgi lýkur. Því desember hefst víst á mánudag og fyrsti í aðventu er í dag svo þetta er allt saman að koma. Held að ég sé ekkert spenntari en vanalega, er bara svolítið mikið jólabarn. Skil ekki fólk sem hlakkar ekki til jólanna eða finnst jólin leiðinleg. Það er algjörlega ofar mínum skilningi.

-Sérstaklega þegar maður er nýbúin að fá sér Kitchen Aid,) Upp með eggjahvíturnar og sykurinn: Tími á marengs! ..og allar þær sortir sem þér dettur í hug að gera af smákökum.
Þú ert örugglega efni í 20 sorta týpuna: )
..og njóttu þess nú að vera ekki í prófum með heitu súkkulaði (eða venjulegu) og RJÓMA eins og þér einni er lagið!