annagudny.bloggar.is
Heilsuátaki lokiđAnna Guđný
Heilsuátakinu á barnaskurðdeildinni lauk á mánudaginn og þá var ég aftur vigtuð og fituprósentan mæld. Ég hafði þá lést um 2 kg, fituprósentan lækkað um 2,4% og kviðarummálið minnkað um 9 cm. Já, heila 9 cm! Alveg geggjað. Síðan reiknaði þjálfarinn út hver hefði unnið og gaf hún stig fyrir hvert kíló, hverja fituprósentu og hvern sentimetra sem einstaklingur hafði misst eða bætt á sig. Því markmiðin voru náttúrulega ekki þau sömu hjá öllum. Sumir vildu bæta á sig og þyngja sig á meðan aðrir vildu létta sig og grennast. En niðurstaðan kom í dag og mér til mikillar undrunar vann ég keppnina. Það þýðir að ég fæ alla peningana sem við lögðum í pott í byrjun átaksins. En það eru um 30.000 kr! Finnst ég varla geta tekið við þessu, hef hreinilega ekki samvisku í það. En er að hugsa um að finna eitthvað gott málefni og styrkja það. Get einhvern veginn ekki eytt þessu í mig.
En já, ég er aldeilis hissa...var alveg búin að ákveða hver myndi vinna keppnina...hún Stína sæta...því hún er búin að vera svaka dugleg.En ég óska okkur öllum til hamingju með árangurinn. Erum búnar að vera svaka duglegar...nema kannski sú sem þyngdist um 2 kíló!! He he 
