Aðalvalmynd

Auglýsing

Bloggvinir

Tenglar

Teljari

Nýtt árAnna Guðný

Jæja, þá er komið nýtt ár og því fylgir auðvitað nýtt blogg. Vil byrja á að óska ykkur gleðilegs nýs árs og ég vona að þið hafið haft það gott um jólin. Það hef ég svo sannarlega gert og efast ekki um að ég sé búin að éta á mig allt sem fauk af í átakinu góða. En það má byrja að berjast á móti því núna fljótlega þegar lífið kemst í fastar skorður aftur og stórsteikur og heitt súkkulaði með rjóma hætta að vera á matseðlinum á hverjum degi. Jólin eru og verða alltaf yndisleg held ég og mér finnst synd og skömm hversu fljótt þau líða.

En ég hef aðeins verið að velta fyrir mér þessari bloggsíðu. Nenni varla að halda henni úti og velti fyrir mér hvort það sé áhugi hjá lesendum að ég haldi skrifum áfram eða hvort mér sé óhætt að hætta þessu ruglumbulli. Held bara svei mér þá að lífið mitt sé ekki það spennandi að ég hafi svo margt að segja. Svo nenni ég varla að vera eins og einn af moggabloggurunum...sem tauta og röfla yfir öllu... en þá er ekki svo margt eftir að fjalla um. En hvað segið þið um þetta?

Athugasemdir

1
Your Alien Stepmother skrifar:
Sæl ljúfan mín. Það er búið að vera gaman að fylgjast með þér en ég skil vel að þú nennir þessu ekki lengur. Finn það reyndar að vindurinn er farinn út þér þarna á blogginu. Notum bara gömlu góðu samskiptaaðferðina - "face-toface"!
02. janúar 2009 klukkan 10:51
2
Karen skrifar:
heyrdu.. thú mátt ekki haetta! ég sem alltaf fylgist med thér hér :(
09. janúar 2009 klukkan 11:35
3
Karen skrifar:
neiiii ekki haetta!! ég fylgist alltaf med thér hér! :(
09. janúar 2009 klukkan 11:36
4
Karen skrifar:
ok aetla ad útskýra!! hahahaha.. gerdi einu sinni og thad kom ekki upp svo ég gerdi bara aftur og thá audvitad komu baedi allt í einu upp! jaeja.. thú átt thá bara tvofalt nei frá mér! :)
09. janúar 2009 klukkan 11:37
5
Sigríður skrifar:
Nei, ekki hætta... ég kíkji alltaf hérna reglulega og mér finnst gaman að lesa bloggið þitt:) Þú ert góður penni :-)
10. janúar 2009 klukkan 15:26
6
Þuríður skrifar:
Já, Lilli, þú ert góður penni og gaman að lesa um hvað þú ert að hugsa.... en þú hefur kannski um annað að hugsa og gera þessa dagana, þannig að ég skil alveg ef þú vilt eyða tímanum í það (eða á maður ekki bara að segja hann frekar!);o)
Stóra systir:Þ
10. janúar 2009 klukkan 18:07
7
Rakel skrifar:
Ég kíki alltaf af og til. En er sjálf orðin löt að pára á mína síðu en ætla að reyna að halda henni úti samt. Enda finnst mér að blogg eigi að vera þannig, að fólk skrifi bara þegar það vill og langar, þótt það líði langur tími á milli.
13. janúar 2009 klukkan 07:04

Skrifa athugasemd

Prófíll

Gagnasafn

Innskráningar kubbur