annagudny.bloggar.is
Eurovision!Anna Guðný
Herra Heimur!Anna Guðný
Ég er að velta fyrir mér hvort það sé ekki alveg nauðsynlegt að vera heima á laugardagskvöldið og horfa á Mr World í sjónvarpinu. Hvað er betra en að horfa á myndarlega, ofur tanaða og olíusmurða stráka? Get ekki látið mér detta neitt í hug. Fulltrúi okkar Íslendinga í keppninni var Jón Gunnlaugur Viggósson en myndin er einmitt af honum...hann tekur sig vel út ekki satt? Eftir að hafa skoðað heimasíðu keppninnar er nokkuð ljóst að ég mun ekki halda með úkraínska stráknum því hann lítur út eins og stelpa. Skrítið að þeir skyldu ekki hafa sent einhvern með loðhúfu á hausnum og vodka í hendinni...
ÞreytaAnna Guðný
Ég á við vandamál að stríða. Ég er búin að sofa illa núna í rúma viku. Fyrst tengdi ég það prófunum og gerði ráð fyrir því að ég væri stressuð þó ég fyndi nú ekki mikið fyrir því á annan hátt. Í prófatörninni fór ég seinna að sofa en vanalega og vaknaði aðeins fyrr vegna þess að ég var að læra. En svo þegar ég fór upp í rúm gat ég bara hreinlega ekki sofnað. Ég bara lá í rúminu og gat ekki sofnað. Þegar prófin voru búin hélt ég að vandamálið myndi hverfa en það hefur ekki gert það. Í fyrsta lagi þá á ég mjög erfitt með að sofna en ég held að vandamálið snúist meðal annars um það að mér er svo ískalt á tánum. Kem ekki í þeim hita þó ég sé að stikna úr hita að öðru leyti. Svo þegar mér tekst loksins að sofna þá sef ég mjög illa. Ég ætti alla vega ekki að verða feit því ég bylti mér stanslaust og er því á hreyfingu alla nóttina. Og svo hef ég líka tekið upp á því að vakna um miðja nótt eða áður en vekjaraklukkan hringir…ótrúlega ánægjulegt!
Núna er ég því orðin ótrúlega þreytt og komin með bauga sem ná niður á hné. Vona að bráðum fái ég að sofa almennilega svo ég haldi geðheilsu minni.
Æj æj æjAnna Guðný
Mér er illt!! Einn af endajöxlunum mínum er að troða sér upp og það er ekkert smá vont. Er búin að finna til í þessu í þrjá daga en þetta hefur aldrei verið eins vont og í dag. Ég skil núna vel af hverju lítil börn gráta þegar þau eru að fá tennur...það er ógeðslega vont! Kannski er þetta smá mér að kenna...en ég held samt ekki. Málið er að ég þoli bara ekki að fara til tannlæknis og fer ég eins sjaldan og ég get þó svo að tannlæknirinn minn sé alveg ljómandi fín kona. Fyrir um 2 árum síðan sagði tannlæknirinn minn að ég ætti að fara í kjálkamyndatöku því hún væri ekki viss um að það væri pláss í munninum fyrir endajaxlana mína. Ég er ekki mjög meðferðarheldin og hef því ekki enn farið í þessa myndatöku. Pantaði mér tíma einu sinni sem ég afbókaði svo. Ótrúlega dugleg!
En ef það þarf að taka endajaxlana þá held ég að það sé ekki gert fyrr en þeir eru komnir upp...svo ég ætti ekki að vera að gera neitt rangt því þeir eru ekkert allir komnir...en kannski er það bara misskilningur og ég er rústa öllu saman. Þið megið gjarnan hugsa fallega til mín í dag...ekki veitir af!
Annars langar mig til að benda ykkur á lag með Tracy Chapman sem heitir The promise...brjálaðslega sætt lag með flottum texta
Harry Pé!Anna Guðný
Ég er strax farin að hlakka til! Harry Potter kemur í bíó föstudaginn 13. júlí! Veit reyndar að ég á að vera að vinna frumsýningarhelgina en ég bara verð að reyna að komast í bíó þessa helgi…bara verð! Ef það tekst ekki þá fer ég eins fljótt og hægt er. Geri ráð fyrir að ákveðnar vinkonur mínar komi með mér að sjá myndina... Nýja bókin, Harry Potter and the deathly hallows, á svo að koma út 21. júlí svo þetta verður greinilega Harry Potter sumarið.
Hlakka ekkert smá til að sjá Harry Pé vin minn á stóra tjaldinu! ![]()
Merkilegur dagurAnna Guðný
Fékk ýmislegt til að hugsa um í dag. Hugsanir sem leiddu mig til þessa textabrots sem er að finna í lagi með Dido.
Oh the world has sat in the palm of your hand not that you'd see
and I'm tired and bored of waiting for you and all those things you never do…
Ég var að hugsa svolítið í gær. Þann tíma sem ég verð í vinnunni að námi loknu og fyrir útskrift er réttast að kalla mig hjúkrunarfræðling samanber orðin unglingur og kiðlingur. Þennan tíma verð ég ekki hjúkrunarfræðinemi og ekki orðinn hjúkrunarfræðingur. Því finnst mér réttast að kalla mig hjúkrunarfræðling þessa 10 daga sem um ræðir. Klikkuð…kannski smá! ![]()
Mér verður stundum hugsað til þess hvað það eru margar góðar eða merkilegar kvikmyndir sem ég á eftir að sjá. Ég hef til dæmis ekki séð Schindler’s List, Pulp Fiction eða Godfather myndirnar. Stefni þó að því að horfa á einhverra þessara mynda í framtíðinni og allar hinar myndirnar sem ég á eftir að sjá og man ekki eftir í augnablikinu. Einhver til í sjónvarpsgláp með mér?
Þrátt fyrir að hafa ekki séð myndina þá mæli ég samt með þema-lagi myndarinnar Schindler’s list. Hægt er að hlusta á lagið hér.
Geðsveiflur...Anna Guðný
Sem dæmi má nefna er yndislegt að sitja og lesa fyrir próf og hlusta á lóuna syngja. Þá veit maður að vorið er komið. Það er hins vegar hundleiðinlegt að lesa fyrir próf þegar maður sér ekki fram á að ná að lesa allt námsefnið fyrir prófið.
Ég kvíði fyrir prófinu á morgun því það verður örugglega erfitt og ég næ örugglega ekki að lesa nóg fyrir það. En morgundagurinn er líka góður því þegar prófinu er lokið þarf ég ekki að taka fleiri próf.
Ég hlakka mjög mikið til 10. maí því þá á ég að skila lokaverkefninu mínu en ég kvíði líka þeirri stundu því það er svo margt sem þarf að gera fyrir þann dag.
Hlakka líka til 23. maí því það er lokaskiladagur á verkefninu en þann dag þarf ég líka að kynna verkefnið mitt og ég veit ekki hvort það verður eitthvað skemmtilegt.
Ég gleðst yfir styrknum sem ég fékk til þess að vinna lokaverkefnið en ég nenni hins vegar ekki að skrifa tímaritsgreinina sem ég þarf að gera til þess að fá styrkinn.
Að lokum ætla ég að lýsa yfir gleði minni með google leitarsíðuna...yndisleg uppfinning...hægt að njósna um fólk og fá alls konar upplýsingar...en að sama skapi er líka hægt að njósna um mig...
Jæja, það er kominn tími fyrir áframhaldandi lestur. Mæli með laginu In the wee small hours of the morning. Það er bara eitthvað svo sætt og yndislegt!
Soðinn tómatur og sætir strákar!Anna Guðný
Í dag fór ég á sundmót sem var haldið í Laugardalslaug en ég hef ekki farið að horfa á sundmót þar í mörg ár og hef því aldrei komið í nýju áhorfendapallana. Hef til dæmis aldrei setið við það að horfa á sundmót og oftast kom maður rennandi blautur út. En ekki í dag því þá sat ég fjarri sundlauginni og blotnaði ekki neitt. Hins vegar er stór galli á þessari byggingu en hélt ég myndi andast úr hita þarna inni. Ég var orðin eldrauð í framan og Kalli sagði að ég liti út eins og soðinn tómatur. Huggulegt það! En það var eitt svolítið fyndið. Það er alltaf gaman að fara á sundmót því þá getur maður horft á sæta stráka á sundskýlum. Ég var reyndar á garpamóti sem þýðir það að keppendurnir voru svona um 20 árum eldri en ég. En það voru þarna nokkrir strákar að keppa sem voru að æfa á sama tíma og ég og þeir voru bara ekkert flottir lengur. Reyndar bara svolítið feitir. Ég þakkaði Guði fyrir það í huganum að hafa ekki bætt eins miklu á mig og þeir.
Annars er það í fréttum að ég sá tvo sæta stráka í dag. Það er ótrúlegt…því ég hef nú ekki tekið mikið eftir þeim undanfarið. En ætli ég sé ekki öll að lagast
Og það er eitt sem er svolítið merkilegt…þeir voru báðir ljóshærðir. Ég einhvern veginn horfi miklu frekar á dökkhærða stráka og finnst þér myndarlegri…veit ekki af hverju. En þessir strákar voru bara rosa sætir. Svo nú hef ég ákveðið að horfa á alla stráka…sama hvernig hárið þeirra er á litinn!
Ég er að fara í seinna og líka síðasta prófið mitt á mánudaginn og ég er eiginlega farin að kvíða svolítið mikið fyrir. Það er bara búið að vera mjög mikið að gera í dag svo ég náði ekki að læra mikið. En mér hefur einhvern veginn alltaf tekist að koma mér í gegnum prófin þrátt fyrir allt sem ég er að gera. Svo ég ætla bara að gera ráð fyrir því að geta það líka í þetta skiptið. Enda staðráðin í að læra sem aldrei fyrr á morgun og hinn!
DagbókAnna Guðný
Þetta blogg er ágætt í þeim tilgangi að fá útrás. Útrás fyrir því sem fer í taugarnar á mér og svo er ágætt að geta tjá sig um hin ýmsu málefni hér. En þetta blogg kemur aldrei í staðinn fyrir dagbók. Ég get aldrei skrifað hér það sem ég er að hugsa eða langar til þess að tala um. Þá væri ég eins og opin bók og ætti ekkert leyndarmál fyrir mig. Og ekki vil ég það. Því er ég að velta því fyrir mér að fara að skrifa dagbók aftur....því það er oft einfaldara að létta aðeins á sér áður en maður leggst til hvílu. Því ég á oft erfitt með að sofna vegna þess að ég þarf að hugsa svo mikið og velta mér upp úr ýmsu. Vondur galli en eitthvað sem er þó alveg hægt að lifa með. Sjónvarpið mitt hefur hjálpað mér mikið með þetta vandamál...því ef ég horfi á sjónvarpið áður en ég fer að sofa komast engar hugsanir að...bara sjónvarpið og sú vitleysa sem í því er.
Gleðilegt sumar!Anna Guðný
Gleðilegt sumar! Vonandi eigið þið eftir að njóta dagsins í dag. Sjálf ætla ég að eyða fyrsta sumardeginum í próflestur en geri þó ráð fyrir að fara á kaffisölu Skógarmanna og fá mér eitthvað gott að borða seinnipart dags. Hvet ykkur til að gera slíkt hið sama og hitta mig og gleðjast með mér yfir sumrinu og góðum veitingum. Sjáumst!
