annagudny.bloggar.is
Hmmm...Anna Guðný
Er dottin í það...er komin á facebook...heimur versnandi fer!Úffí dúffí...Anna Guðný
Að standa á eigin fótum og verða aðeins eldri og fullorðnari hefur ýmislegt í för með sér. Það þarf að taka ýmsar ákvarðanir, hvað á að læra, hvar á að vinna, hvenær á að flytja að heiman og hvert...í leiguíbúð eða á að reyna að kaupa? Þetta er alls ekki auðvelt og getur tekið langan tíma að taka svo stórar ákvarðanir. Hins vegar held ég að það hafi aldrei verið eins erfitt að verða fullorðinn og akkúrat núna í því efnahagsástandi sem ríkir. Það veit enginn hvað á eftir að gerast eða hvernig málin þróast og hvað þá hvernig þau eiga eftir að leysast. Á eftir að koma óðaverðbólga? Á húsnæðisverð eftir að hrynja? Hvað verður um peningana okkar?
Fyrst ætlaði ég ekki að láta þessa blessuðu kreppu hafa nein áhrif. Ætlaði að vera stolt af því sem ég hef gert og láta þetta ekki hafa áhrif á mig. En það er greinilega ekki hægt og ég þarf að brjóta odd af oflæti mínu og sætta mig við það að vera Íslendingur og finna fyrir ástandinu. Því það hefur ýmislegt breyst. Ég veit ekki enn hvað verður um hluta af peningunum mínum og hef ekki hugmynd um hvort þeir peningar sem ég hef verið að safna mér séu eins mikils virði og þeir voru áður. Ef þið skiljið hvað ég meina. Allt hefur hækkað og þó svo að það sé keypt inn í Bónus þá er allt orðið dýrt. Meira að segja þar. Svo fer maður hugsa um íbúðir og íbúðaverð og hvort það sé skynsamlegt að fara á leigumarkaðinn...já þessar hugsanir sem einu sinni voru aðeins smávægilegar hafa sko aldeilis undið upp á sig og orðið að miklu hugarangri.
Það væri gott að geta sofnað í smá stund og vaknað við það að allt væri orðið gott.
Ái ái ái...Anna Guðný
Fór í ræktina í gær eins og vanalega. Byrjaði tímann vel og hugsaði með mér að nú væri kominn tími til að taka á því, enda lítið um hollan mat á meðan jól í skókassa fór fram og því væri ráð að brenna nokkrum kaloríum sem allra fyrst. Tíminn var nýbyrjaður og ég lagði mig alla fram, hljóp sem hraðast, tók stærstu skrefin og hoppaði upp af öllum krafti... lenti svo eitthvað illa þannig að ég fékk eitthvert tak í bakið...og gat voðalega lítið gert það sem eftir var af tímanum. Ákvað samt að klára tímann þó það væri nú bara gert með hálfum huga og bakverkjum. Hef svo eiginlega ekkert getað hreyft mig síðan þá. Ákvað að fara ekki í ræktina í dag því ég finn til í bakinu við alla hreyfingu, þegar ég sit, stend eða ligg. Komst að þessu með leguna í nótt þegar mér leið eins og ég væri komin 8 mánuði á leið og gat varla snúið mér við í rúminu. Fór þá að velta því fyrir mér hvað snúningslök hlytu að vera hrikalega góð á tímum sem þessum...og ef maður væri nú í alvöru óléttur. Kemst kannski að því seinna.
Náði mér í hitapokann minn góða sem ég fékk að gjöf í leynivinaleiknum í vinnunni í fyrra. Algjör snilld. Sit og ligg núna til skiptis með hitapokann á bakinu og tölvuna fyrir framan mig og horfi á Greys anatomy á netinu. Þakka Guði fyrir vefsíður sem sýna sjónvarpsefni...því það er akkúrat það sem heldur lífi í mér þessa dagana. Voðalega fegin að vera í fríi í vinnunni, það hefði þó mátt nýtast á aðeins betri hátt. Sé ekki fyrir mér að ég standi mig vel í átakinu góða þar sem ég er nú ósköp fljót að vorkenna sjálfri mér og fá mér eitthvað gott að borða. Vona bara að ég verði fljót að ná mér svo ég komist í ræktina sem fyrst.
Draumur að rætast...Anna Guðný
Já, ég lét loksins verða af því í gær. Var búin að ræða þetta heillengi og hugsa til þess hvað það yrði nú gaman að fjárfesta í einni. Tilhlökkunin jókst eftir því sem við nálguðumst búðina og að lokum var ég alveg að farast úr spenningi. Kom inn í búðina og gekk strax upp að heimilisvörunum og sá hvar hún blasti við mér. Rauða kitchen aid hrærivélin. Vá, hvað hún var falleg. Kippti einni með mér og lét orð um kreppu og sparnað sem vind um eyru þjóta og rétti fram vísakortið. Skrítið að ég sá ekkert eftir peningunum og geri það ekki enn því hún stendur svo falleg í eldhúsinu. Auðvitað búið að prófa hana, skellti í bounty-tertu í gærkvöldi og þeytti rjóma með. Algjör snilldarvél sem bíður eftir jólunum alveg eins og ég. Hún hefur nú fengið nafnið Emma.
Frábært verkefni!Anna Guðný
Jól í skókassa gekk alveg frábærlega. Við kláruðum að ganga frá öllum skókössunum núna um hálftíu leytið í kvöld sem er algjört met. Undanfarin ár höfum við verið að ljúka við það um klukkan þrjú aðfaranótt sunnudags. En með aðstoð allra sjálfboðaliðanna og vel skipulögðum dögum gekk verkefnið betur en allir þorðu að vona. Fjöldi skókassa í lok dags var rétt rúmlega 4700 sem er nákvæmlega sami fjöldi og á sama tíma í fyrra. Gerum hins vegar ráð fyrir að fá um 200 kassa í viðbót því það eru alltaf einhverjir sem skila á morgun og mánudag. Því er ekki hægt að segja til um hver lokafjöldinn verður fyrr en gámnum verður lokað á þriðjudag fyrir fullt og allt og hann sendur í burtu.
Fór að hugsa hvað ég væri hrikalega ánægð með hópinn okkar. Að við vinirnir skulum standa að baki svo stóru og flottu verkefni ásamt KFUM og KFUK og öllum frábæru sjálfboðaliðunum er alveg ótrúlegt. Get ekki sagt annað en að ég sé rosalega stolt af okkur. Ég veit að við breytum ekki heiminum með þessu verkefni. Það kemur ekki friður þar sem styrjaldir ríkja, við útrýmum ekki fátækt heimsins og lögum ekki efnahagskreppu landsins en við leggjum okkur alla vega fram um að gera heiminn örlítið betri með því að gleðja tæplega 5000 úkraínsk börn sem hefðu kannski ekki fengið jólagjöf. Og það er gott því eins og stóð á forsíðu morgunblaðsins í dag þá erum við bæði að gleðja og gleðjast með því að taka þátt í verkefninu.
Ég vil þakka öllum sem tóku þátt í verkefninu á einn eða annan hátt...þið eruð frábær!
Jól í skókassa!Anna Guðný
Mig langaði bara að minna alla á verkefnið Jól í skókassa. En verkefnið er unnið af KFUM og KFUK í samvinnu við Biblíuleshópinn Bleikjuna sem ég er einmitt partur af. Verkefnið felst í því að fá börn jafnt sem fullorðna til að gefa jólagjafir í skókassa og er kössunum síðan útdeilt til þurfandi barna í Úkraínu. En í Úkraínu er mikið atvinnuleysi og ástandið víða bágborið. Á því svæði sem skókössunum er dreift ríkir mikil örbirgð. Skókössunum verður meðal annars dreift á munaðarleysingjaheimili, barnaspítala og til barna einstæðra foreldra. Markmiðið með verkefninu er að mæta þörfum fólks og sýna kærleika Guðs í verki.
Til að einfalda ykkur verkið fylgja nokkrar leiðbeiningar. Finnið tóman skókassa og pakkið honum inn í jólapappír. Athugið að pakka lokinu sérstaklega inn svo hægt sé að opna pakkann. Ákveðið fyrir hvaða aldurshóp gjöfin á að vera, strák eða stelpu 2-4 ára, 5-9 ára, 10-14 ára og 15-18 ára og merkið með viðeigandi merkimiða á lokið. Setjið svo gjafir eins og ritföng, föt, leikföng, hreinlætisvörur og sælgæti í skókassann. Best er að setja einn hlut úr hverjum þessara flokka í kassann. Setjið að lokum 300-500 kr í umslag efst í kassann fyrir sendingarkostnaði.
Tekið verður á móti skókössum í aðalstöðvum KFUM og KFUK, Holtavegi 28, alla virka daga frá kl. 9-17. Síðasti skiladagur er laugardagurinn 8.nóvember frá kl. 11-16 og fer hver að verða síðastur að skila inn kassa...því það eru bara nokkrir dagar í lokaskiladaginn! Þennan dag fer fram kynning á verkefninu, léttar veitingar verða í boði og eru allir hjartanlega velkomnir.
Að lokum langar mig til að benda ykkur á heimasíðu verkefnisins
www.skokassar.net. Þar má finna bækling um verkefnið og kynningarmyndband.
Koma svo...allir að taka þátt í jól í skókassa!
Rosalega heppinAnna Guðný
Ég hlustaði á tvær ræða saman í vinnunni um peningavandræði þeirra. Eftir stuttu umræðu hugsaði ég með mér að nú væri kominn tími til að ég myndi hætta að kvarta. Ég komst nefnilega að því að ég hef ekki yfir neinu að kvarta. Það vill oft gleymast og ég held við verðum að vera dugleg að minna okkur á hvað við erum raunverulega heppin. Þrátt fyrir fjárhagsvanda landsins og mikla óreiðu þá megum við ekki gleyma okkur í áhyggjum heldur minna okkur á að við búum á landi þar sem er hreint vatn og nóg af því, ekkert stríð, ágætis heilbrigðisþjónusta og hreint og gott loft. Svo megum við ekki gleyma að þakka fyrir góða heilsu, fjölskylduna, vinina og allt það sem gleður okkur. Því peningar eru ekki allt.
...Kannski pínu væmið en ég þarf stundum að sýna á mér mjúku hliðina...er það ekki?
Aðeins meiri pirringurAnna Guðný
Gærdagurinn var ekkert svaka skemmtilegur því eftir dekkjaverkstæðavesenið reyndi ég að millifæra peninga milli tveggja reikninga á netbankanum. Það gekk ekki svo ég þurfti að hringja í bankann og biðja um aðstoð. Seinna um daginn fór ég aftur inn á netbankann og sá þá að það var búið að taka peninginn tvisvar sinnum út af reikningnum en ekkert hafði verið lagt inn á hinn reikninginn. Ég hringdi í bankann og til að gera langa sögu stutta lagaðist yfirlitið í dag en það hafði verið tekið út og lagt inn sex sinnum á eina og sama reikninginn. Bankinn greinilega algjörlega í rugli.
Ég fór eftir vinnu til að láta skipta um dekk á bílnum, beið í tvær klukkustundir, var síðasti viðskiptavinur dekkjaverkstæðisins og þurfti að vera rosalega óþolinmóð. Eitthvað sem ég á erfitt með stundum. En rétt áður en það kom að mér sá ég að það var ljós í mælaborðinu á bílnum. Ljós sem ég kannaðist ekki við. Ég athugaði í handbók bílsins hvað það myndi þýða og eina útskýringin sem ég fann þar var að ég þyrfti að fara með bílinn til Toyota. Að öðru leyti veit ég ekkert hvað amar að bílnum en kemst kannski að því fljótlega. Vona bara að ég endi ekki einhvers staðar ein á umferðareyju í kuldanum. Vinsamlegast takið mig þá með ef þið keyrið framhjá...
Pirri púAnna Guðný
Ég á frí í dag og ég ætlaði að nota daginn í ýmislegt. Til dæmis fara í ræktina, kaupa afmælisgjöf og setja vetrardekkin undir bílinn. Þegar ég vaknaði í morgun var hins vegar allt fullt af snjó, svo ég vissi að það yrði örtröð á dekkjaverkstæðum. Ég dreif mig út og ákvað að fresta ræktinni aðeins. Beið í röð fyrir utan eitt dekkjaverkstæði í 35 mínútur áður en ég gafst upp því það hafði ekkert gerst, röðin hafði ekki færst til og engin númer hægt að taka. Svo ég keyrði á tvö önnur verkstæði og þar var hætt að taka við bílum, en klukkan var þá aðeins ellefu. Ég varð rosalega pirruð…af hverju þurfti akkúrat að snjóa í dag þegar ég átti frí? Bíllinn þarf að komast á vetrardekkin fyir helgina því ég þarf að keyra upp í Vindáshlíð og það verður væntanlega ekki hægt að fá þjónustu eftir vinnu á morgun eða föstudag. Ætli ég endi ekki einhvers staðar utan vegar á föstudaginn.
Þoli ekki svona tímaeyðslu…
En veturinn er greinilega kominn Orðið kalt og allt fullt af snjó. Kuldinn hefur í för með sér rosalega lágt hitastig á tánum á mér og fingrunum. Hendurnar mínar eru líka orðnar svo þurrar að þær eru eins og sandpappír, hnúarnir rauðir og allir sprungnir og það veldur sviða þegar ég þvæ á mér hendurnar. Rosalega þægilegt að vera í vinnu þar sem ég er alltaf að spritta á mér hendurnar. Er svaka ánægð með dúnvestið sem ég fékk í afmælisgjöf..vildi að ég ætti jafn hlýja skó líka. Verst að þeir eru flestir svo ljótir.
UppáhaldiðAnna Guðný
Ég var að horfa á nýjustu Grey's anatomy þættina á netinu. Hef aldrei horft á sjónvarpsþætti sem mér finnast eins skemmtilegir og þessir. Það er eitthvað við þá, sem ég get eiginlega ekki alveg útskýrt, sem gerir það að verkum að ég get horft á þættina aftur og aftur og mér leiðast þeir aldrei. Þeir fá mig til að hugsa og það er akkúrat það sem ég vil að sjónvarpsefni geri. Að það sitji eftir í kollinum á mér.
