Aðalvalmynd

Auglýsing

Bloggvinir

Tenglar

Teljari

Bakþankar og páskaeggAnna Guðný

Það er nú ekki oft sem ég nenni að lesa það sem Guðmundur Steingrímsson skrifar í bakþanka Fréttablaðsins en það gerði ég í morgun og ég er mjög sammála mörgu sem hann segir þar. Þrátt fyrir að blaðið hafi greinilega verið unnið á föstudaginn langa Glottandi
 Guðmundur er að tala um helgidaga og segir meðal annars: Um hverja einustu páska, einkum á föstudaginn langa, kemur upp ákveðin deila milli þeirra sem vilja virða helgidaga og þeirra sem vilja gera það sem þeim sýnist. Mér hefur alltaf fundist þetta dálítið furðuleg deila. Ég hef aldrei skilið þá almennilega sem vilja gera veður út af þessum helgidögum við þjóðkirkjuna eða aðra. Mér er spurn: Eru menn ekki bara almennt sáttir við það að fá frí? Þurfa menn endilega að gera eitthvað?  Ég held að ég hafi ekki verið að gera neitt veður út af frídeginum í gær en finnst oft hinir trúlausu gera það. En til hvers eru þeir að gera það…er ekki bara fínt að fá frí sama hvaða ástæða liggur að baki? Reyndar má túlka bakþankana hans Guðmundar þannig að hann hafi verið pirraður yfir því að vera í vinnunni en ekki heima í fríi… Ef þið hafið áhuga á að lesa meira er hægt að lesa bakþankann hér.
 


Ég fann einn jákvæðan punkt við vinnuna mína í dag. En ég var á bakvakt í morgun frá kl. 8-14 og var ekkert kölluð út…það þýðir að ég var á launum heima…ekki slæmt það. Aftur á móti má alveg ræða launin aðeins…en hver nennir því?! Glottandi

 

Annars hefur mér gengið frekar vel með lokaverkefnið mitt undanfarið og þá sérstaklega í dag. Komin með 7.218 orð en hámarkið er 15.000 orð svo þetta er allt á réttri leið. Þess vegna ætla ég að taka mér frí í kvöld og gera eitthvað skemmtilegt og eiga svo frí á morgun á sjálfan páskadaginn og hafa það huggulegt með páskaeggjunum mínum!!

Föstudagurinn langiAnna Guðný

Í dag er föstudagurinn langi sem hefur örugglega ekki farið fram hjá neinum. Undanfarin ár hef ég haft það fyrir sið að fara í messu á þessum degi. Fyrir tveimur árum fór ég í Laugarneskirkju þar sem Jón Gnarr var með hugleiðingu. Fyrir ári síðan fór ég í Grensáskirkja þar sem sr. Ólafur Jóhannsson var að predika. Í ár ákvað ég að fara í mína eigin kirkju, Vídalínskirkju, og sé ég ekki eftir því. Þar var fín stund og gott að koma í kirkju til að rifja upp atburði dagsins. Mér finnst þessi dagur mjög merkilegur og ég vil virða hann. 

Þess vegna finnst mér mjög leiðinlegt að sjá auglýst að úrslitin í X factor eigi að vera í kvöld. En það sem mér finnst eiginlega verra er að úrslitin í keppninni fyndnasti maður Íslands er líka í kvöld. Þegar idol keppnin var í sjónvarpinu var tekið hlé á keppninni yfir páskana og finnst mér að það sama hefði átt að vera gert núna í X factor keppninni. Og hverjum er ekki sama um hvenær fyndnasti maður Íslands er krýndur? Það er alveg eins hægt að gera það eftir viku...

Annað sem mér finnst vera slæmt eru púkapáskaegg. Af hverju í ósköpunum er verið að tengja púka við páskana? Hvaða snillingi datt það í hug? Fyrst þegar ég sá þetta hugsaði ég með mér að þetta væri gert vegna þess að þetta stuðlar...PúkaPáska...en ef svo ólíklega vill til að það sé ástæðan þá er það mjög léleg ástæða. Því þá væri einfaldlega hægt að kalla páskaeggin prakkarapáskaegg eða eitthvað svoleiðis.

En jæja, þá er röflinu lokið. Það væri yndislegt að vera úti í dag og njóta veðursins. En nei nei, það er lærdómurinn sem kallar. Langar til að skilja við ykkur með 3. versi úr sálmi 143 sem er afskaplega viðeigandi fyrir daginn í dag og talar mjög sterkt til mín.

Þín braut er þyrnum þakin,
hver þyrnir falskur kross.
Ég sé þig negldan nakinn
sem níðing upp á kross.
Ég sé þig hæddan hanga
á Hausaskeljastað.-
Þann lausnardaginn langa
var líf þitt fullkomnað.
                          Davíð Stefánsson.

Að vera í öðrum heimi!Anna Guðný

Ég leigði mér dvd mynd í gær eftir að hafa verið mjög dugleg á sundæfingu. Ég vildi að ég hefði meiri tíma til að horfa á myndir því mér finnst alveg æðislegt að kúra undir sæng og einhvern veginn detta inn í annan heim. En ég er þannig af Guði gerð að ég lifi mig mjög mikið inn í myndir og bækur reyndar líka.  Ég verð hluti af sögunni. Þannig að ef það rignir í myndinni held ég að það rigni líka úti og ef sögupersónur eru glaðar verð ég það líka. Og það er þetta sem mér finnst svo stórkoslegt...að fá að vera einhver önnur en ég í smá tíma. Gleyma öllum áhyggjum og daglegum hefðbundum verkefnum og fá að taka þátt í ástarævintýri eða jafnvel bankaráni...í svona tvær klukkustundir Glottandi

...Anna Guðný

Mig skortir orð. Ég á erfitt með að mynda setningar. Virðist hafa gleymt allri ensku sem ég hef lært. Þetta gerir lífið svolítið flókið þar sem ég er að skrifa lokaverkefnið mitt...

Þreyta!Anna Guðný

Ég hef verið mjög þreytt undanfarið. Virðist alltaf geta sofnað, nánast hvar og hvenær sem er. Ég nefndi þetta við hana Berglindi vinkonu mína um daginn sem er einmitt með mér í hjúkrunarfræði. Þá sagði hún: ,,ég hef nú verið þreytt undanfarin 2 ár!" og mér fannst sú setning mjög lýsandi. Ég hef verið mjög þreytt mjög lengi. En ég sé fram á betri tíð með útskrift. Þá hverfur vonandi ekki bara þreytan heldur líka skólaleiðinn sem gæti drepið mig núna. Sá vaktaplanið fyrir sumarið áðan og fékk fiðring í magann...það verður yndislegt að mæta í vinnuna og fara svo heim að gera það sem mig langar!

Ég er líka þreytt vegna breyttrar stefnu. Ákvað að hrista slenið af mér og er farin að hreyfa mig ógeðslega mikið. Sem gerir mig enn þá þreyttari. Fór til dæmis í brjálaðan body attack tíma áðan. Ég hélt ég gæti ekki gengið út...

...vegna þessa alls hef ég tekið ákvörðun um að fara að sofa núna. Enda löngu komið fram yfir minn háttatíma! :) 

Kjör hjúkrunarfræðingaAnna Guðný

Ég efast um að þetta blogg verði mjög málefnalegt. Sérstaklega í ljósi þess að ég horfi eiginlega aldrei á fréttir enda sjaldan heima þegar þær eru í sjónvarpinu. Það er ekki útvarp í bílnum sem ég keyri í flestum tilvikum svo ekki geta hlustað á þær heldur. En ég les samt moggann að hluta til, það er ég fletti mogganum frá baksíðu og fram yfir íþróttasíðurnar og svo skoða ég forsíðuna.

En ég hef fylgst vel með einu máli upp á síðkastið sem er svo sem ekki skrítið en það snýr að kjörum hjúkrunarfræðinga og skorti á þeim.  Í dag og í gær var til dæmis umfjöllun um skort á hjúkrunarfræðingum í mogganum. Í fréttinni stendur að í dag séu 3102 hjúkrunarfræðingar á vinnualdri á Íslandi en af þeim starfi aðeins 2689 á íslenskum stofnunum. Vegna þessa og annarra ástæðna vantar 582 hjúkrunarfræðinga til starfa í dag. Það kemur einnig fram að fyrirsjáanlegt sé að skortur á hjúkrunarfræðingum muni aukast fram til ársins 2015 en það ár muni að óbreyttu vanta 749 hjúkrunarfræðinga til starfa.

Í útvarpsviðtali um daginn sagði Anna Stefánsdóttir hjúkrunarforstjóri Landspítalans að það væru ekki til nógu margir lærðir hjúkrunarfræðingar á landinu til þess að manna LSH í sumar og áframhaldandi. Það er alveg rétt. En ef við lítum til þess að af þessum 3102 hjúkrunarfræðingum sem er búið að mennta eru 413 sem vinna ekki við hjúkrun. Alla vega ekki á Íslandi.

Og af hverju skildi það nú vera? Það virðast ekki vera margir sem velta þessari spurningu fyrir sér. Í dag er stefnan sú að fjölga nemum við hjúkrunarfræðideildir Háskóla Íslands og á Akureyri. Jú jú, það getur örugglega hjálpað til við að fjölga hjúkrunarfræðingum. En hvernig væri að spyrja sig að því af hverju þessir 413 hjúkrunarfræðingar eru ekki í vinnu?

Ég held að ástæðan séu fyrst og fremst léleg kjör hjúkrunarfræðinga. Laun hjúkrunarfræðinga eru léleg. Það er bara sannleikur. Álagið á hjúkrunarfræðingum er mjög mikið, bæði vegna skorts á hjúkrunarfræðingum og vegna vaktaálags. Til að lýsa vaktaálaginu langar mig til að segja eina sögu. Ég var á kvöldvakt í sumar og hugsaði um unglingsstúlku og fjölskyldu hennar. Faðir stúlkunnar gisti hjá henni og ég var á vakt þegar þau fóru að sofa. Ég mætti svo á morgunvakt daginn eftir og var því mætt þegar þau vöknuðu. Þegar ég kem inn til þeirra um morguninn horfir faðir stúlkunnar á mig og segir: ,,ertu alltaf í vinnunni?". Þetta skýrir líka ástæðu þess hve fáir hjúkrunarfræðingar eru í 100% vinnu.

Þetta ástand er skammarlegt og það þarf eitthvað að gera í þessu. Þegar ég var yngri ætlaði ég mér alltaf að koma mér í starf sem engin kona hefði unnið áður. Ég ætlaði mér til dæmis að verða forsætisráðherra og fá að ráða einhverju. Í dag trúi ég því að það sé ástæða fyrir því að ég fór í hjúkrun...það þarf konur með bein í nefinu til að breyta og bæta stöðu hjúkrunarfræðinga. Og ég er sko alveg tilbúin til þess!

Bloggið byrjar...Anna Guðný

Jæja, eftir að hafa fengið kvartanir yfir því að blogga ekki og gera aðeins athugasemdir hjá öðrum bloggurum hef ég ákveðið að taka áskoruninni og blogga aðeins. Það er eitthvað sem mig hefur alltaf langað en aldrei gert. Sennilega vegna þess að ég taldi mig ekki hafa neitt að segja og svo af því að ég hélt og held kannski enn þá að það sé hallærislegt að byrja blogg núna. 5 árum seinna en allir aðrir byrjuðu...en svona er ég nú bara...svolítið hæg og treg...en samt svo yndisleg! :)
Síða 21 af 21

Prófíll

Gagnasafn

Innskráningar kubbur