Aðalvalmynd

Auglýsing

Bloggvinir

Tenglar

Teljari

Hátæknisjúkrahús?Anna Guðný

Þó ég sé starfsmaður Landspítalans hef ég ekki fylgst mikið með umræðunni um hátæknisjúkrahús. Veit að það voru vangaveltur um staðsetningu þess og svo hvenær ætti að hefjast handa. Núna hefur verið ákveðið að taka fyrstu skóflustunguna 2010 ef mig minnir rétt. Misjafnar skoðanir eru meðal starfsmanna spítalans um þetta sjúkrahús. Ég hef ekki myndað mér almennilega skoðun á málinu og er svolítið á báðum áttum. Vissulega er Landspítalinn orðinn of lítill og gamaldags. Lítið er um einstaklingsherbergi og nútímamanninum finnst óþægilegt að deila stofu með öðrum. Enda svo sem ekkert skrítið þar sem það er örugglega óþægilegt að vera með verki, ælandi, með niðurgang eða aðra fylgikvilla sjúkrahúslegu í návist einhvers ókunnugs. Gjörgæslan er orðin allt of lítil, svo lítil að stundum þarf að fresta aðgerðum vegna skorts á plássi. Og má nefna mun fleiri deildir spítalans þar sem plássleysi er helsta vandamálið. Svo mikið vandamál að fólk liggur á göngum og klósettum. Hversu huggulegt er það? 


En ef byggja á nýtt, stórt sjúkrahús á sem bestan hátt þá skil ég ekki alveg hvernig það á að virka. Því helsti vandi Landspítalans er mannekla. Og þá er ég ekki bara að tala um hjúkrunarfræðinga heldur skortir fólk í svo mörg störf. Óánægja starfsfólks er einnig mikil á sumum sviðum og ég held að þessi tvö vandamál munu ekki hverfa úr sögunni þrátt fyrir nýtt húsnæði. Í dag var frétt í 24 stundum þar sem sagt var frá hópuppsögnum hjúkrunarfræðinga á skurð-, gjörgæslu-, og svæfingasviði spítalans. Geislafræðingar eru einnig nýlega búnir að senda sínum yfirmönnum skýr fyrirmæli um að þeir muni hætta ef breytingar á vaktafyrirkomulagi verði ekki að veruleika. Já, það eru mörg vandamál sem fylgja spítala allra landsmanna...en ég held að lausnin felist ekki endilega í stærra og betra húsnæði.

Áttu ekki andlitskrem...það er sko miklu betra en body lotion!Anna Guðný

Ég fór í sund áðan og þegar ég fór upp úr voru nokkrar stelpur úr skólasundi samferða mér. Ég giska á að þær hafi verið um 13 ára gamlar. Þær töluðu alveg heilmikið saman í búningsklefanum og ég gat ekki annað en hlustað á samtöl þeirra. Þær ræddu fyrst og fremst snyrtivörur og krem og virtust vera miklir sérfræðingar um slíkar vörur. Ein þeirra var með þetta allt á hreinu, kenndi hinum að þvo sér um andlitið, setja á sig krem og svo að sjálfsögðu meika sig. Hún sagði þeim hvernig kremið virkaði, hvernig það opnaði svitaholurnar og lokaði þeim aftur, hvað það væri miklu betra að nota andlitskrem en body lotion og svo hélt hún langa ræðu um af hverju það væri betra að nota meik en púður. Ég varð mjög hissa á því að stelpurnar væru að velta sér upp úr þessu ekki eldri en þær eru. Þegar ég var á þeirra aldri var ég ekki farin að mála mig og ég efast um að ég hafi vitað hvað andlitskrem væri og enn í dag velti ég þessu lítið fyrir mér. En hvernig skyldu þessar stelpur líta út þegar þær fara að eldast í raun og veru? Mér varð bara hugsað til kellingarinnar í myndinni There’s something about Mary…


Hæfileikar?Anna Guðný

Það er þetta með hæfileikana. Við höfum þá öll en það er eins og sumir hafi fleiri hæfileika en aðrir. Örverpið í fjölskyldunni, litli langi bróðir minn, hefur verið í keppnisliði MH í Gettu betur undanfarin 3 ár. Síðasta fimmtudagskvöld lauk MH keppni með því að tapa fyrir liði MA með 1 stigi í undanúrslitum. Þetta var líka síðasta keppni bróður míns því hann er að fara að útskrifast frá skólanum núna í vor aðeins 18 ára gamall. En í vor ætlar hann einnig að útskriftast frá Tónlistarskólanum í Garðabæ en þar hefur hann lært á gítar frá því hann var 8 ára.            

Eftir tapið á fimmtudagskvöldið tilkynnti bróðir minn kærustu sinni og móður að hann hefði skráð sig í söngkeppni MH og hann þyrfti því að drífa sig þangað til að geta sungið. Þangað mætti hann, söng og spilaði á píanó og vann að sjálfsögðu keppnina. Svo núna er hann að fara að taka þátt í söngkeppni framhaldsskólanna. 
           

Þar sem við bróðir minn eigum sömu foreldrana og erum þar af leiðandi búin til úr sömu genum þá spyr maður sig af hverju hæfileikunum er svona misskipt. Ég hefði alveg vilja fá brot af hæfileikum hans til að muna alls konar mistilganslausa hluti og spila á öll heimsins hljóðfæri. Ég segi nú bara að það er eins gott að ég er svona miklu fallegri en hann! Brosandi
 

Blautt, kalt, hvasst...Anna Guðný

 Ég er komin með leið á þessu veðri. Ég nenni ekki að fara í úlpu og vera með húfu, vettlinga og trefil alla daga. Allir skórnir mínir eru ataðir í salti og ég verð oft blaut í fæturna á því að vaða snjóskafla eða polla. Langar í vorið með sína yndislegu sól og hita.
 

RÚVAnna Guðný

Ég hef aldrei verið mikill aðdáandi ríkissjónvarpsins. Stöðin sýnir mikið af efni sem ég hef ekki áhuga á. Samt er þar að finna klassíska þætti eins og ER og Desperate housewifes. Undanfarið hefur stöðin verið að vaxa í áliti hjá mér. Kannski er það vegna þess að ég er eldast og þroskast en ég held frekar að það sé vegna þess að dagskrá stöðvarinnar verður sífellt betri. Og þá sérstaklega íslenska efnið. Sá þáttur sem er í mestu uppáhaldi hjá mér þessa dagana er Sunnudagskvöld með Evu Maríu en þeir þættir eru mjög góðir að mínu mati. Viðtölin eru öðruvísi og hún talar við skemmtilegt fólk að öllu jöfnu. Finnst líka frábært að stöðin ætlar að sýna íslenskar myndir á sunnudagskvöldum en oft hefur maður ekki séð þær í bíó því það eru dýrustu myndir kvikmyndahúsanna.  
 
Annars splæsti ég í pipp-ís áðan. Hef aldrei smakkað hann áður því hann er alls ekki ókeypis. Get ekki trúað öðru en að ísinn muni bragðast vel. Ég elska súkkulaði, piparmyntu og ís...þannig að blanda af þessu þrennu getur ekki klikkað!
 

Ég elska...Anna Guðný

Þó ég sé ekki ástfangin þá er ýmislegt sem ég elska út af lífinu. Ég elska til dæmis að dansa. Mér finnst það brjálað gaman. Í kvöld var ég á árshátíð og fékk að dansa og dansa og dansa...og það var æðislegt því það var nóg pláss, það var enginn drukkinn að detta á mig, enginn að reykja og enginn ógeðslegur gaur að horfa á mig. Í staðinn var ég að dansa við hana Hjördísi vinkonu mína og marga aðra vini mína. Dásamlegt. Samkvæmisdansar eru líka mjög ofarlega á blaði núna þar sem ég er á dansnámskeiði. Hins vegar er ég ansi hrædd um að danskunnátta mín verði ekki upp á marga fiska þrátt fyrir námskeiðið þar sem ég get ekki munað danssporin frá degi til dags. En kannski ég fari bara á framhaldsnámskeið! 
 
Ég elska líka rúmið mitt. Og þessa dagana elska ég það meira en vanalega því ég er ótrúlega þreytt og ég er með nýtt sængurver. Vá, hvað það breytir miklu að vera með nýtt sængurver. Það er yndislegt. Á morgun fæ ég líka að sofa út og það er eitthvað sem ég hef beðið eftir lengi. 

Ég elska líka lagið Afgan með Bubba. Það er bara eitthvað við það sem gleður mig. 
 

Ég elska líka ískalt kók...bæði alvöru kók með miklum sykri og kók light...verð að fara að viðurkenna fyrir mér og öðrum að ég drekk óþarflega mikið af svarta drykknum. Skammast mín svo sem ekkert fyrir það þar sem ég sleppi svo mörgu öðru óhollu í lífinu...svo ég á inni!

Bíó og gettu beturAnna Guðný

Ég veit ekki hvað það er en mig langar alltaf í bíó. Mér finnst ótrúlega gaman að fara í bíó þó ég skilji ekki alveg af hverju. Bíómiðinn er rándýr, það er oft subbulegt, nammið er glæpsamlega dýrt og það getur verið ótrúlega leiðinlegt fólk í kringum þig. Þrátt fyrir þetta þá langar mig alltaf í bíó. Fór til dæmis tvo daga í röð um daginn og var það ekki í fyrsta skipti…geri aðrir betur. Og þessa dagana er ótrúlega erfitt að standast það að fara ekki í bíó þar sem bestu myndir ársins eru sýndar núna. Allar óskarsverðlaunamyndirnar og allt alveg brjálað.

 

Ég hef tekið eftir því að eftir að lið MH vann Kvennó í Gettu betur um daginn hefur ýmislegt verið skrifað um keppnina og liðin sjálf, bæði í blöðum og á netinu. Sumt af því er mjög leiðinlegt og alls ekki málefnalegt. Það finnst mér ótrúlega leiðinlegt því hann litli bróðir minn er í MH-liðinu. Og hann hefur ekkert gert af sér annað en að vera þátttakandi í spurningakeppni. En undanfarið hefur hann, ásamt liðsfélögum sínum, þurft að heyra ýmislegt miður fallegt um sjálfan sig og ég veit hann tekur það nærri sér. Sjálfri fannst mér ekkert sérstaklega skemmtilegt að sjá hann vinna skólann minn en auðvitað hélt ég með honum. Kenna má dómaranum um hvernig keppnin fór en hann gerði einfaldlega mistök, enda mannlegur og breyskur eins og hver annar. Í venjulegri íþróttakeppni þætti okkur ekkert eðlilegra en að kenna dómaranum um mistökin en aldrei dytti okkur í hug að kenna sigurliðinu um en umræðan hefur verið á þá leið að MH sé sökudólgurinn. Skil samt ekki hvernig fólk fær það út en það var ekki MH að kenna hvernig keppnin fór. Að lokum…áfram MH!

Rom comAnna Guðný

Ég var á næturvakt og mér tókst að horfa á myndina Holiday með nokkrum hléum. Þessi mynd er algjörlega frábær að mínu mati og henni tekst einhvern veginn alltaf að koma mér í gott skap. Ef ég myndi ekki lifa mig inn í svona rómantískar gamanmyndir væri lífið ekki eins fallegt og gott og það er í raun og veru. En þegar slíkar myndir eru búnar spyr ég mig alltaf…hvenær hitti ég jafn myndarlegan mann og Jude Law?...hvenær verð ég eins ástfangin og parið í myndinni?... Ég geri mér reyndar grein fyrir því að það geta ekki allir dagar verið eins bleikir og fallega rómantískir og dagarnir í myndinni sýna. En ég held samt í vonina um góða daga. Og talandi um rómantík...ég held að mér finnist ekkert fallegra en að sjá gömul hjón í göngutúr leiða hvort annað. Hjón sem eru búin að vera ótrúlega lengi saman en eru samt svo ástfangin að þau leiðast í göngutúrunum sínum. Já, lífið getur verið ótrúlega fallegt eftir að hafa horft á Jude Law í tvo tíma...hann hressir, bætir og kætir!

Æði pæði...Anna Guðný

Stundum mætti halda að ég væri ófrísk. Já, vegna þess að ég er mjög gjörn á að fá æði fyrir einhverju og maður hefur heyrt að ófrískar konur fái æði fyrir ákveðnu mataræði. Grænn frostpinni, kartöflur og brennisteinn af eldspýtum er meðal þess sem ég hef heyrt að konur borði á meðgöngunni og ég er ekkert að plata. Þeim dettur í hug að borða ýmislegt annað en okkur hinum. En ég er hins vegar ekki ólétt en fæ samt sterka löngun í ákveðna tegund matar reglulega. Og ekki bara mat heldur líka eitthvað skemmtilegt. Núna er ég til dæmis með æði fyrir því að borða brauð með rúsínum í, sterkan brjóstsykur og frostpinna og spila leik í tölvunni sem heitir hearts. Vinkona mín toppar mig þó algjörlega. Hún tekur allt með trompi og það sem hún hefur áhuga á hverju sinni fær alla hennar athygli. Meðal þess sem hún hefur tekið sér fyrir hendur er að fylgjast grimmt með eurovision, bryðja klaka, borða sítrónur, græna tómata og fara í ræktina helst tvisvar á dag. 

 Ég vildi óska að ég væri eins dugleg og hún og fengi æði fyrir því að fara í ræktina, borða grænmeti og ávexti, en ekki fyrir óhollum mat og setu fyrir framan tölvuna. Þá myndi ég líklega vera aðeins hraustari og líta betur út...

Súkkulaði...nammi nammi gott!Anna Guðný

Ég hef alltaf verið mikill nammigrís en ég elska allt sem heitir sælgæti og þá fyrst og fremst súkkulaði. Ég held að þetta sé í genunum því foreldrar mínir geta verið alveg ótrúlegir í sælgætinu líka. Pabbi minn geymir til dæmis súkkulaði fyrir aftan bækur í bókahillunni svo hann einn viti um það. Þá getur hann alltaf fengið sér súkkulaði með kaffinu á kvöldin. Og mamma mín er engu skárri. Situr oft á kvöldin og maular eitthvað gott.  

Þegar ég var í félagsfræði í Kvennó fengum við það verkefni að skrifa heimildaritgerð. Tilgangurinn var að kenna okkur heimildaöflun og að skrifa heimildaritgerð en við máttum velja ritgerðarefnið. Ég ákvað að skrifa um súkkulaði og veit þar af leiðandi kannski aðeins meira um þessa yndislegu vöru en aðrir. Ég komst til dæmis að því að súkkulaði er alls ekkert svo óhollt og staðfestingu þess efnis fékk ég núna í vikunni. En í Fréttablaðinu á fimmtudaginn var grein eftir næringarfræðing um ágæti súkkulaðis. Í greininni kom meðal annars fram að rannsóknir á súkkulaðivörum benda til að þær innihaldi fjölmörg efni sem hafa jákvæð áhrif á líkama og sál. Reyndar er það ekki súkkulaðið sjálft sem er svo hollt heldur kakóbaunin og þess vegna er 70% súkkulaði hollara en annað súkkulaði því það inniheldur meira af kakói. En til þess að réttlæta allt súkkulaðiátið þá kom einnig fram í greininni að kakóbaunin inniheldur ekki aðeins prótein, kolvetni og fitu heldur einnig vítamín og steinefni. Í kakóbauninni eru líka efni sem örva tauga- og heilastöðvar auk þess sem öflug andoxunarefni eru í bauninni sem tefja hrörnun líkamans. Þessi andoxunarefni hafa jákvæð áhrif á hjarta- og æðakerfið með því að bæta blóðflæðið um líkamann og lækka þannig blóðþrýsting og álag á hjartað og draga úr líkum á blöðruhálskrabbameini. Að lokum kom fram að súkkulaðið dregur úr þrálátum hósta. 
 

Nú er ég búin að telja fram nokkur af þeim góðu áhrifum sem súkkulaði hefur á líkama okkar og sál og efast ég ekki um að þau geti verið enn fleiri. Ég held samt að þrátt fyrir alla þessa kosti súkkulaðis að þá sé það ekki hollt í mjög miklu magni. En þó ég hafi alltaf verið talsmaður þess að allt sé gott í hófi...þá er bara staðreyndin sú að sumt er betra í aðeins meira magni en annað! Og súkkulaði er bara of gott til að geta staðist  það...
Síða 9 af 21

Prófíll

Gagnasafn

Innskráningar kubbur